If you can dream it, you can do it!
Upptekin eða leti??Magnhildur Ingólfsdóttir
Fjúff hvað er langt síðan ég hef skrifað nokkurn hlut hér..Hvers vegna skyldi það vera?
Er ég svona hrikalega upptekin.. eða er ég svona hrikalega löt eftir að ég útskrifaðist og það fór að hægjast um.. eða gæti það verið af því að ég eyði ekki jafn miklum tíma fyrir framan tölvuna eftir að ég hætti í skólanum??
Held það sé dáldið blanda af þessu öllu..
Það er svolítið skrítin tilfinning að vera búin með skólann. Ég útskrifaðist með glæsibrag sem viðskiptafræðingur en samt núna þegar ég er að skoða atvinnuauglýsingar þá er ég ekki alveg að finna mig í þessum sem segja skrifstofustarf/bókhald/fjármálastjórn eða eitthvað í þá átt..
Hmm, ég er náttla bara fordekraður Herbalife dreifingaraðili sem er svo rosa góðu vön, gat bara unnið þegar mér sýndist með skólanum og gekk vel.
Núna er ég búin að plana einhverjar 4-5 utanlandsferðir þannig að það er ekki alveg að henta að fara í 9-5 vinnu með því.
En þá komum við að sjálfsaga.. núna er ég bæði í Herbalife og stjórn AIESEC og það er bæði svona með sveigjanlegan vinnutíma og ég þarf sjaldan að vera mætt einhverstaðar snemma á morgnana.. og þá get ég sagt þér að það er bara ekki svo auðvelt að vinna..
Ég er ekki alveg að kunna við allt þetta sjálfræði, eða ég kanna ekki að höndla það nógu vel.. vantar meiri pressu og stífari dagskrá því ég afkasta aldrei eins miklu á öllum sviðum eins og þegar ég er að kafna í verkefnum..
Er núna bara hálfpartinn að berjast við leti og framtaksleysi því maður hefur það eitthvað svo of gott..
-taka á þessu takk!!
En já, 4-5 utanlandsferðir.. hljómar vel:
Fyrsta ferðin er núna 2-9.mars til Þýskalands á vegum AIESEC, þar verðum við 5 stelpur fulltrúar Íslands á leiðtogaráðstefnu fyrir Vestur Evrópu og Noður Ameríku. Hlakka rosa mikið til -Þetta verður áhugavert, góðir endurfundir frá Istanbul :)
Næsta ferð er EXTRAVAGANZA hjá Herbalife, í Barcelona í júní! Það verður geggjað gaman, planið er að leigja íbúð nokkur saman. Reyndar er búið að bjóða okkur að koma niður til S-Frakklands áður en ráðstefnan hefst.. ekki viss um að það verði málið, ég ætla að bjóða svo mörgum með mér þannig að það er betra að halda hópinn.
Þriðja er að það er búð að bjóða mér að vera í Organizing Comittee fyrir Norðurlandaráðstefnu Scalds sem verður haldin í Danmörku um Verslunarmannahelgina, finnst það gríðarlega spennandi tækifæri. Þá fæ ég að hitta svo marga aftur sem ég kynntist á International Congress í Tyrklandi í fyrra.
Fjórða er í beinu framhaldi af þessari þriðju og það er ÞRÍÞRAUTAR KEPPNI Í LONDON!! Þar sem ég stefni á að synda í Thames ánni, hjóla og hlaupa. Það er alveg svona klárt samræmi milli þess að klára viðskiptafræði og verða íþróttakona, ekki satt ?
Svo myndi fimmta ferðin vera að flytja til Hollands í september og fara í starfaskipti þar í 3-6 mánuði. Þá gæti ég verið í starfi tengdu mínu námi, vinna með Herbalife Generaion H og koma tengslum þar á milli við AIESEC..
Þannig að í grófum dráttum er árið nokkuð planað.. Svo þarna á milli ferða erum við td að fá mesta HÖNK LÆKNIR Í HEIMI til að halda íþróttaráðstefnu með Herbalife í apríl, prófaðu að gúggla hann, Luigi Gratton.. og gettu hvað.. ég fæ að borða kvöldverð með honum!! -yndælis návígi það
Svo er ég með á dagatalinu að fara í 3 daga Rafting túr í júlí, aftur með 2 Hollendinum
VINNA HVAÐ?? HVENÆR??
Sýnist ég bara algjörlega þurfa að láta hendur standa fram úr ermum og njóta frelsisins með Herbalife. Ég get látið þetta allt ganga upp með því að vakna örlítið fyrr á morgnana, segja örlítið fleiri frá viðskiptatækifærinu og vörunum sem ég gæti boðið þeim..
Kannski ég biðji þig um að hjálpa mér í gang. Má bjóða þér að fylla út heilsuskýrslu á www.heilsufrettir.is/hress
