If you can dream it, you can do it!
Long time no see..Magnhildur Ingólfsdóttir
það er alveg gríðarlega margt búið að vera í gangi síðan síðast.. td fengum við alveg æðisleg hjón, Frank og Benedicte á STS skólann til okkar og þau ýttu heldur betur við manni.. þau voru að halda þjálfun í fyrsta skipti svona erlendis og það var ekkert smá gaman að vera á staðnum því minn draumur er að flakka um og halda svona þjálfanir, geta sagt eitthvað sem hefur áhrif á fólk og getur ýtt við þeim til að bæta líf sitt..
Þeirra frasi:
"I'm responsible for my life, my feelings and every result I get"
jamm.. og eftir þeirra heimsókn hérna þá hefur áhugi minn á Danmörku aukist enn meir.. var annars orðin mjög spennt fyrir landi og þjóð þegar ég var þar, verður gaman að fara til Köln, þá kannski endanlega tek ég ákvörðun um hvort ég stefni á Lýðháskóla og fer að læra ljósmyndun, dans og söng..
síðustu helgi var líka var Generation H (unga fólkið í Herbalife) með snilldar "Celeb" partý,
fullt af frægum sem mættu.. Paris Hildur, Justin Timberlake, Lara Croft, Marilyn Monroe og fl. búin að setja myndir inn á minnsirkus
Hmm.. svo hefur stærsta vandamál lífs míns síðustu daga verið að ákveða hvaða daga í júlí ég eigi að vera í Köln.. fjúff hvað það er ljúft.. núna er ég búin að ákveða að vera þar 24.-30.júlí.. þannig að núna get ég bara látið mig fara að hlakka til..
Oh þetta verður svo geggjað, Extravaganza í fullum skrúða.. er strax byrjuð og setja mig í stellingar því núna er markmiðið að taka þátt í "Fun run" til styrktar "Herbalife Family Foundation" þannig að ANTI-SKOKKARI dauðans er farin að fara út að skokka alla daga, það er geggjað!! Sérstaklega þegar Kristín kemur með mér, skít-þunn eins og í dag, þá virka ég í svo rosa góðu formi... híhí..
En maður þarf einmitt kannski líka að fara að æfa aðeins oftar þunnur því hlaupið úti verður klukkan 7 á laugardagsmorgninum, strax eftir ROSALEGT GenerationH partý sem verður á föstudeginum..
sjitt ég er svo spennt fyrir að komast þarna út.. en ekki eins og ég geti samt kvartað.. ég er að hafa það alveg rosa gott í sumar, verð að vinna Herbalife í fullustarfi þannig að ég get ráðið vinnutímanum alveg sjálf, t.d. kíkt á Kristínu niðrí Nauthólsvík þegar það er ruglaðslega gott veður [eins og það verður náttla í allt sumar] og svona nokkurnveginn vaknað þegar ég er búin að sofa og svona.. hehe
Svo á miðvikudaginn er ég að fara að túristast með tveimur Hollendingum, við erum að fara í RiverRafting í Jökulsá-Eystri sem er víst rosa action á.. ég mér sýnist að ég sé að fara ein með þeim því allir aðrir eru að VINNA á miðvikudegi..
-ég fer bara með bænirnar mínar og hugsa um Secret, þá kem ég pottþétt heim í heilu og góðu lagi-
Skal láta fljótlega vita hvernig það fer ![]()
HOM-vöru&viðskiptakynningMagnhildur Ingólfsdóttir
Í tilefni af því að ég verð "Full-time" í Herbalife í sumar þá verð ég, ásamt fleiri dreifingaraðilum, með opið hús í HeilsuCenternum mínum, Bæjarhrauni 10, (á móti KFC) á FIMMTUDAGINN KL 13-14, eru þið ekki í fríi þá??
Þetta verður svona Herbalife Opportunity Meeting þar sem ég sé um vörukynningu og samstarfsfélagi minn leiðir okkur í gegnum viðskiptatækifærið, í bland við árangurssögur af vörum og viðskiptum..
Þetta er tilvalið tækifæri fyrir þá sem vilja ná sér í aukatekjur eða tilbreytingu í sumar, hér heima eða erlendis.. líka snilldar vörur til að bæta líðan og með sportinu..
Ég hvet þig til að koma og kanna málið
Þeir sem verða virkilega spenntir fyrir því sem við erum að gera býðst að mæta á:
Gestahluta á STS Success Training Seminar (mánaðarlegur skóli) á Sunnudaginn kl 10-13
- Heiðursgestir frá Danmörku sýna okkur lífsstíl sinn
- Frábær vöruþjálfun, leidd af dönsku konunni, húkrunarfræðingur og hleypur maraþon
- Happadrætti – Fjöldi heilsutengdra vinninga
- Viðurkenningar – Viðurkenningar fyrir heilsuklúbba
- Glæsilegt shake-hlaðborð
Þetta er vettangur til að sjá virkilega hvaða tækifæri Herbalife hefur uppá að bjóða
Vinsamlega látið mig vita hvort ég eigi von á að sjá ykkur á fimmtudaginn, takk
Fulltime..Magnhildur Ingólfsdóttir
Vá síðasta færsla var orðin svo löng að ég setti á "kött"
Ég er semsagt orðin 23 ára.. maður veltir aðeins fyrir sér hvað það þýðir.. hvað þýðir það?? [comment]
Fyndið maður dettur alltaf í eitthvað svona, ekki beint krýsu en samt svona einhverja skoðun í kringum afmælið sitt.. held reyndar bara svona eftir að ég varð 20+ sem ég fór að pæla í þessu..
En það eru bara spennandi tímar framundan..
ég kláraði fyrsta daginn minn í dag sem "FULLTIME HERBALIFE DREIFINGARAÐILI"
Ekkert smá frábært, gaf mér alveg þvílíkt búst í að ég gæti gert þetta.. Núna er bara málið að fylgja þessu vel eftir og halda sér vel við efnið..
Planið þessa viku hjálpar mér allavega mjög vel við það:
Þriðjudagur: Netfundur á www.fundur.net kl 20 fyrir dreifingaraðila, farið yfir sýnishornapakka [árangur og góð ráð] plön með Köln og fl.
kl 21 er gestahluti, allir velkomnir að heyra um vörurnar okkar og viðskiptin, viltu láta þér líða betur andlega og líkalega og fá um leið aukatekjur í vasann.. hljómar VEL
Fimmtudagur: Verðum með Herbalife Opportunity Meeting þ.e. kynning á vörunum&viðskiptunum í nýja fína CENTERNUM okkar í Bæjarhrauni 10. Ég kynni vörurnar, þá væri voða gaman að sjá kunnugleg andlit í salnum
Föstudagur: Supervisorskóli, tvískiptur, fyrst RJ-grúppa svo allt Ísland. á Grand Hotel með frábærum gestum frá Danmörku, millionersteam hjónin Benedikte og Frank
Laugardagur: GenerationH partý á Q-bar, þetta verður þvílíkt stuðpartý fyrir ungukynslóðina í Herbalife, 18-30 ára. Kostar 1000 kall inn, bjóða vini með og drykkur fylgir. Og til að toppa það verður Celebrety þema í gangi
Sunnudagur: verður rosalegur STS skóli á GrandHotel frá 10-17, opið fyrir gesti frá 10-13. Þar verða heiðursgestirnir frá Danmörku í fyrirrúmi, kannski getur hún kennt okkur hvernig maður fær svona geggjaða upphandleggi eins og hún er með.. þau eru allavega að gera flotta hluti.. eiga búgarð í Svíþjóð og einhvern ruglaðan bíl.. aldrei eins gaman á STS eins og þegar erlendir gestir koma og sýna lífstíl sinn og segja frá sigrum og ósigrum..
Ég er mjög spennt fyrir þeim því núna er ég voða heilluð af Danmörku.. langar helst bara að fara eftir áramót í Lýðháskóla og læra ljósmyndun og dans.. það hljómar vel.. og byggja upp viðskiptin mín um leið.. við erum allavega búin að koma á mjög táknrænum vinasamning við Danina þar sem við skiptumst á fánum við þau áður en við fórum heim..
Önnur niðursett plön hjá mér næstu daga er Lady's night með AIESEC stelpunum á miðvikudagskvöld, afmælið hennar Sirrýar á fimmtudaginn, Talent management fundur með Ali kl 16 á föstudaginn, og AIESEC planning á laugardaginn frá 13-17
Nóg að gera
viðburðarríkir dagar..Magnhildur Ingólfsdóttir
Góða kvöldið góða kvöldið..
vá ég hef ekki skrifað staf hér mjöööög lengi.. og ekki heldur verið með kveikt á msn frekar lengi.. alveg búin að þykjast vera dugleg við að læra..
en núna eru prófin búin!!! fjúff hvað það er ljúft..
ég get samt ekki kvartað.. þetta var frekar fyndinn prófatími.. því ég var í prófi 26.apríl svo 3.maí, 8.maí og 10. og snilldin var að ég skaust bara til Danmerkur helgina þarna á milli.. 4-6.maí, ætlaði alveg að lesa Global marketing í flugvelinni og lestinni til Århus.. en einhvernveginn gerðist það ekki..
DANMÖRK VAR ÆÐI, við fórum beint niður til Århus á föstudeginum, komum í æðislegu veðri á RadisonsSAS, þvílík flottheit í boði Herbalife við komum okkur fyrir og svo var haldinn HOM fundur [Herbalife opportunity meeting] fyrir gesti, rosa stemning.
Við Kristín fórum svo bara frekar snemma upp á herbergi en í staðinn fyrir að fara að sofa.. þá bara bara blaðrað út í eitt.. svo fengum við einhvern svefngalsa þannig að það endaði í einhverri myndasyrpu híhíhí..
á laugardeginum héldum við svo STS [Success training seminar] með Dönunum og við sem vorum búin að ná skilyrðum komumst á Spring Spetecular þar voru Millioners teamin virkilega að grafa djúft niður í ástæðurnar fyrir því hvers vegna þau voru í þessu business.. brjálæðislegasta sagan var frá Tove, norku presidentsteami, hún var kennari að verða blind og eignaðist þroskahefta dóttir. Maðurinn hennar hafði enga trú á henni en þrátt fyrir aðstæðurnar er hún búin að vear í top 4 í Evrópu.. þannig að það eru engar afsakanir fyrir að ná ekki árangri í Herbalife.
Eftir mjög tilfinningaþrunginn og "inpirational" dag var dinner með Dönunum á Hótelinu, sjitt hvað það var þægilegt að hafa þetta bara allt á hótelinu, og þetta var ekkert smá flott hotel.. Eftir dinnerinn komu elskurnar þau Sigrún og Ari og kíktu á mig, ég náttla alveg uppí hæstu skýjum fór að útskýra viðskiptin fyrir þeim.. veit ekki hvort þau skildu orð því ég var á algjörum yfirsnúning.. hehe
Við Kristín kíktum í bæinn með þeim og svo átti að fara að sofa bara rétt eftir miðnætti og lest heim kl 10 á sunnudegi..
en nei nei.. hópur af Íslendingum fór með 2 dönskum strákum á Karóký bar
Svo endaði kvöldið með smá sightseen um bæinn.. þannig að maður var að detta inn um hálf 6.. örlítið á eftir áætlun.. en það var þess virði
Svo var maður bara enn of hátt uppi á heimleiðinni þannig að við Kristín vorum ekki svo vinsælar í flugvélinni með svefngalsann.. en það lifðu það allir af..
Mánudagur rann upp bjartur og fagur og seinnipartinn var dúndrast í gegnum lesefni fyrir Global prófið.. á miðvikdaginn átti ég svo afmæli.. þá mátti maður nú ekki mikið vera að því að liggja fyrir "Supply Chain Management" heldur borðaði með pabba og í desert með mömmu og Andreu Önnu.. Svo bara tók maður prófið á fimmtudaginn og snýtti sér á baksíðunni á því..
Á fimmtudagskvöldið var svo tekið hörku PRÓFLOKADJAMM yfir forkeppni Eurovision á Grand Hotel, svo var bara drekk sorgum sínum yfir RAUÐA ósigrinum og tekið á því í SingStar.. þetta var ekkert smá gaman.. alveg tíbískt samt að vera að kynnast bekkjafélögunum núna svona á þriðja ári þegar þetta er rétt að verða búið.. en það er enn séns..
Svo kom að því að það var tekið í hnakkadrambið á okkur og hent út af Grand, þá lá leiðin í Skipholtið til Gauja.. tíminn leið eitthvað alveg fáránlega hratt þar.. hélt ég hefði bara drukkið 2 bjóra..
það var skelfilegt.. var næstum búin að hringja í mömmu því þetta var bara sénslaust.. ég alltaf eitthvað hálf sofnuð.. uss en svo sofnuðum við saman kl 10, hjúkk
Á laugardaginn tóku ég mamma okkur til og fórum með heilsuklúbbana okkar [Zofi átti frumkvæðið, glæsilegt! ] í smá uppskeruferð. Leiðin lá í BLÁA LÓNIÐ, full mæting í mínum hóp, vá hvað ég var stolt, þið eruð frábær
Þetta var rosa vel heppnuð ferð.. en svo var ein og einhver þynnka færi að taka sig upp seinnipartinn.. hmm.. en svo fór ég í 25 ára afmæli til Kristúnar, Europarty.. geggjuð stemning hjá okkur + Jóni Jökli, ekkert smá langt síðan við höfum brallað eitthvað.. enduðum svo á að fara seint í bæinn og á Nasa á ekta Pál-Óskars-stemningu.. þannig að það var labbað heim um 6 leytið.. bíddu Hildur hvað varð um að ætla alltaf bara að kíkja í 2 bjóra um helgina og fara heim um 1 ??
jahá, og eftir þessa dúndur helgi mætti ég alveg eitur-hress á "maraþon"fund hjá AIESEC maður er víst eitthvað búin að pota sér þar í æðstu stjórn þannig að við erum núna á svona innleiðingar tímabili, rosa margt að læra og mikið um að vera..
það varð framhald á maraþoninu núna í kvöld, mánudag. Mjög gaman að pæla í þessum hlutum sem þau eru að gera því þeir tengjast svo algjörlega náminum sem ég er búin að vera í, hugtök eins og "Balance Scorecard", Critical Success Factors, Porter's strategies.. og hellingur af svona marketing og stefnumótunardóti sem maður getur farið að setja í practice..
vahá, lengsta færsla í heimi.. samt er ég ekki að segja frá "fluffy" dótinu og djúsnum.. híhíhí..
