Aðalvalmynd

Prófíll

AIESEC

Vinir og fjölzk..

Gagnasafn

Setning dagsins...Magnhildur Ingólfsdóttir




maður þarf aldrei að gera neitt... muna það

-og svo bara BROSA-
skoh, bara uppskrift af fullkomnum degi..

Anyways.. ÉG BYRJAÐI Í MAGADANS Í DAG EÐA KVÖLD, VÁ HVAÐ ÉG ER STOLT, frestarinn með framkvæmdakvíðann tók af skarið og mætti..
oh, það var æði!!
við vorum 3 í tímanum + kennarinn, ótrúlega kósý..
núna er bara að æfa heima.. ná slöngunni (ímynda sér að maður sé að gubba leginu, það er víst tæknin..hehehe)
Núna er þetta stefnan, komið á drauma/markmiðalistann:
magadans

Farðu að sofa!!Magnhildur Ingólfsdóttir


Sjitt, af hverju fer maður ekki bara að sofa!?

En velkomin heim Þrúður og takk fyrir spjallið áðan, mjög áhugavert... Spurning um að setja þetta upp í "Balanced_score_card"  Balanced score card
heheh, þetta er kannski ekki alveg rétta myndin en þessi er nokkuð lýsandi, þetta snýst allt um "líffærið" "kunden" hvernig því er beitt, strategían og stefnan, shareholders -hverjir eru aðstandendur..  hehe og gott (eða ekki..)

-úff rosa súr "viðskiptafræði-nördahúmor-
Hlæjandi

Réttari mynd væri svona:
stefnumotun
Og þá væri bara hægt að setja "þjóðerni" inn í eitthvað af belgjunum... heheh 

Anyways, í staðinn fyrir að fara að sofa eða LÆRA þá datt ég inn á þetta kreisý fyndna myndband!! Skoðaðu og settu hljóðið á!!


Komin með svefngalsabull...


It's a must see!Magnhildur Ingólfsdóttir


Happiness is not an accident or something you wish for. Happiness is something you design!

Talandi um happiness....

Vá ég fór í bío á sunnudaginn, það er náttla stórviðburður því ég fer aldrei í bío og horfi aldrei á sjónvarp nema við sérstök tilefni..

... held reyndar að það tengist mikið hvort maður sé á föstu eða ekki.. þegar ég var á föstu fór ég held ég í bío í hverri viku og leigði spólu örugglega þrisvar í viku.. hvað segir það manni??

Anyways.. á sunnudaginn sá ég ótrúlega SNILLDAR mynd
"The pursuit of happyness"


það er bara skylda að allir sjái þessa mynd!!

Hún fær mann til að hugsa sig um og HÆTTA að kvarta og væla yfir öllum smáatriðunum sem eru að ergja mann svona dags daglega!

-sama hvað bara ekki gefast upp-

-ef þú ferð að sjá hana passaðu þá bara að taka með þér lak því þú gætir lent í að það spretti fram nokkur tár...


Take a look: http://youtube.com/watch?v=_xcZTtlGweQ

Hvað er málið...!??Magnhildur Ingólfsdóttir

stefnumótunarvinna
Skil ekki alveg hvað er með mig..
Hroki.. leti.. eða bara komið nóg.. ??

Ég er með eitthvað ruglaðslega þykkt hefti fyrir framan mig í "Strategic marketing" og er að fara í lokapróf í því á föstudaginn! og ástæðan fyrir að prófið er svona snemma er að eftir það byrjum við í Markstrat, sem er svona einhver tölvuheimur sem við erum í liðum að keppa í að reka fyrirtæki,
já ég veit, rosa góð æfing áður en maður "fer út í lífið" en ég er bara alveg að gubba á þetta allt núna..  fæ mig ekki til að lesa heftið og langar ekki að taka þátt í þessari keppni..

Langar bara að fara eitthvað út í heim á flakk og vinna Herbalife.. er búin að einkennast soldið af þessu að eiga erfitt með að klára síðustu metrana.. núna þegar það er bara 1 og hálf önn eftir þá bara Tala af sér

Veit ekki, kannski er þetta því maður er búin að komast upp með að læra td bara fyrir próf deginum áður og fá alveg ágætis einkunn (ég veit, flestum finnst það ótrúlegt en ég er búin að minnka kröfurnar í skólanum) sko ég er farin að setja minna effort í skólann og meira í lífið og tilveruna, maður er víst meira en einkunn, las ég einhverstaðar..

En auðvitað á maður að halda þetta út og gera þetta vel þangað til maður klárar og reyna að nýta sér þetta sem best, viðskiptafræðin "er jú praktísk"

Mig vantar einhverja aðferð til að stappa í mig stálið.. eða berja það í mig.. eða allavega berja úr mér hrokann og letina.. hmmm

-óska eftir slagsmálum Glottandi

Ferðalög..Magnhildur Ingólfsdóttir


Í framhaldi af öllu þessu hringli með "TO GO OR NOT TO GO" to LA þá var ég búin að skrifa niður að fara á AKTÍFA þjálfun í Stokkhólmi, 24.maí því þá verður goðið mitt, John Tartol, með þjálfun þar!!

Þuríður kom svo með þessa hugmynd áðan og mér líst bara frábærlega á hana. Þá væri náttúrulega algjör snilld ef að Danmerkur ferðin sem að Herbalife er að bjóða mér í, væri helgina 11-13. maí því þá væri ég búin í prófum og gæti bara farið að "krúsa" um Norðurlöndin. Gæti heimsótt Gunna og Sigrúnu, farið til Finnlands á Eurovision, ef það vill svo vel til að það sé 18-20.maí (hef ekki hugmynd) því við Marta og Jónína erum búnar að vera að tala um snilldina í því að fara þangað Ullandi
Og gæti svo endað í Stokkhólmi, yrði bara svona eins og Interail á þvílíku farti...

vá hvað það væri töff ef þetta gæti bara gengið upp!!

Svo myndi ég taka annað svona tripp í lok júlí. Þá myndi ég fara til Köln 26.júlí á Extravaganza og svo væri farið yfir til London á Triathlon yfir verslunarmannahelgina!
Á reyndar aðeins eftir að bera þetta betur undir yfirmanninn minn.. en þetta er svona óska-dagskráin..

Sjitt hvað maður er mikill töffari, má bara hvorki vera að því að vera í vinnu eða skóla því ég þarf svo mikið að vera að ferðast Svalur

Ákvarðanir...Magnhildur Ingólfsdóttir

fjúff fjúff..
Það er alveg rosaleg helgi nýafstaðin!!

Byrjaði alveg ótrúlega skemmtilega þar sem ég VANN BIKAR niðri á REX. Málið er að við erum að keppa í viðskiptaliðum í grúppunni okkar í Herbalife, mitt lið varð í 3.sæti og svo VANN ég einstaklingskeppnina, uss hvað ég er montin!! Svalur

Svo á laugardeginum var einn magnaðasti STS skóli sem ég hef farið á. Hann var í fyrsta lagi frábær því ég var að slá persónulegt met í fjölda "downlínu" sem mætti á staðinn, og þar af átti ég 3 sem fóru á svið.
Tvær voru að taka við SUPERVISOR pinnanum sínum, algjörar hetjur, og svo var mamma elskan að fá AKTÍFA SUPERVISOR pinnan sinn, hún er ótrúlega dugleg!!

Svo var að toppa skólann að Jónína og Björgmundur voru að taka við MILLIONERS TEAM pinnanum sínum og deildu sögunni sinni með okkur. Þau voru svo ótrúlega hvetjandi, höfðu trilljón ástæður til að gefast mörgum sinnum upp á þessari leið en þau komust í mark, algjörir sigurvegarar!
Þetta svona fékk mann til að endurskoða sína stöðu, taka afsakana listann og henda honum, fara að vinna og láta markmiðin sín verða að veruleika.
Þannig að núna ÆTLA ég að taka við Global Expansion Team pinnanum mínum í Köln. og þá sko líka betra að fara að vinna ef ég ætla að ná því.

Fyrst þarf ég að setja mér tímaplan og standa við það.. það er svo auðvelt að vera ekki í stuði en þá þarf maður bara að gera stuð og "stick to the game plan"
skóli og læra 8-17   ræktin og fjölskyldan 17-20 eftir 20 er Herbalife vinna.
Mér líst rosa vel á þetta plan en það á eftir að taka á að fylgja því..

Eftir helgina var ég líka búin að taka aftur ákvörðun um að fara til LA 21-26 mars en þá er Markstrat og allt kreisý í skólanum þannig að ég held að einu sinni enn taki ég það út af listanum.
En klári samt febrúar vel, nái 500 RO og sé allavega með réttindi til að fara þangað, enda væri það líka fyrsta skrefið í áttina að GET Glottandi

Þetta snýst um ákvarðanir og þetta er háanna tími þeirra.. núna þarf maður líka að ákveða með sumarvinnuna, spurning ef maður ætlar bara að vera á ferðalögum allt sumarið þá gæti verið erfiðara með vinnuna.. hehe

Fancylegheit og tóm gleði..Magnhildur Ingólfsdóttir

Vahá, það er MEGA helgi framundan...

Föstudagur: Millioners' Team Reception á REX

Laugardagur: Heilsuklúbbar, winner-saga frá nýju Mill-Team, viðurkenningar og fullt af fróðleik á STS á Grand Hotel

Laugardagskvöld: AIESEC hittingur yfir einum köldum..

Sunnudagur: Lífstílsleiðbeinandinn 2007 Glottandi fyrsta sinnar tegundar, námskeið fyrir Supervisora; Heilsuklúbbahandbók, fjármálin, nýtt Lífstílsmat og fleira nytsamlegt til að "slá í gegn" í viðskiptunum..

Nóg að gera.. 

en jessjess, á að vera að lesa núna í strategic marketing.. lokapróf í næstu viku.. let's get to it..
 

GRAND OPENINGMagnhildur Ingólfsdóttir

Á morgun, fimmtudag kl 20 verður haldið "Grand Opening" á Heilsuklúbb hér á Hverfisgötunni!
International Millioners team, Halldóra Skúladóttir
kemur og opnar fyrir okkur klúbbinn!


Stemningin verður á léttu nótunum, sjeiksmakk og aðrar léttar veitingar í boði.. svo heyrði ég Kristínu eitthvað tala um gjöf fyrir gesti.. hmm
Ég verð á staðnum til að forvitnast hvernig svona fer fram.. þannig að ef þú ert jafn forvitin og ég
þá er þér velkomið að kíkja við..
sendu mér línu og ég skal leiðbeina þér að réttum dyrum :)

my.liftoff@gmail.com
sjáumst

Valentínusardagur!Magnhildur Ingólfsdóttir

 Ef það va einhver sem var ekki búin að taka eftir því þá er Valentínusardagurinn í dag!!
Fyndið, ég heyrði í útvarpinu á leiðinni í skólann í morgun að á þessum degi væru allir að tuða yfir því að þurfa að gera eitthvað fyrir elskuna sína eða hinir sem væla yfir því að hafa engan til að dúllast í kringum og gera eitthvað fyrir..

Ég reyndar bara áttaði mig á því þá að ég gat bara brosað og verið fullkomlega ánægð með mína stöðu, að vera laus við að eyða deginum í að uppfylla einhvers annars væntingar. . .   [afneitun.. maður spyr sig..]

Í staðinn ætla ég að dekra við sjálfa mig, fara í klippingu og hafa það huggulegt :)  geri það sem mér sýnist, þá eru engar óuppfylltar væntingar eða vonbrigði :)

Get samt ekki neitað því að mér þótti mjög vænt um óvæntu valentínusar-kveðjuna sem ég fékk!!
Alltaf gaman þegar það er munað eftir manni, ekki síst á degi sem þessum ;)

but I'm off, getting haircut !!
ciao

LOKAVERKEFNI!!Magnhildur Ingólfsdóttir

jæja, er ég að verða gömul eða hvað!!??

Hvað segir það manni að núna 1.apríl á ég að skila inn til skólans um hvað lokaverkefnið mitt á að vera, sem ég á að skila í nóvember, á næstu önn!!

Sjitt ég held ég sé að verða stór.. alveg að verða komin með BS.. hmm
en ekki nóg með að ég viti um hvað það á að vera heldur á ég að tilkynna með hverjum ég ætla að vinna, reyndar er það ákveðið -hjúkk annars hefði hann ákveðið það, sverrir kallinn.. og ég á að láta þau vita fyrir hvaða fyrirtæki ég ætla að vinna það, og þetta fyrirtæki þarf að vera tilbúið að borga kostnað!!

Fjúff, núna held ég að ég þurfi að fara að láta sjá mig í skólanum og aksjúlí kíkja í blöð og hlusta á fréttir til að vita yfir höfuð hvaða fyrirtæki starfa á Íslandi, önnur en Herbalife.. Skömmustulegur heheh

ALLAVEGA ER ÁKVEÐIÐ AÐ ÉG FARI Á FRAMADAGA sem verða fljótlega í byrjun mars, þar fær maður ágætis yfirsýn yfir ft og hvort þau séu að bralla eitthvað áhugavert.. held ég þurfi þá samt að vera búin að gera smá CV til að geta hent í hausinn á þeim.. ok þá er það afgreitt, mæti bara þangað og þá engin ástæða til að láta sjá sig í skólanum.. hehehe Svalur

Jú jú, er að taka mig á.. er farin að reyna að fara fyrr að sofa á nóttunni og allt.. eitt skref í einu..

Netheimar..Magnhildur Ingólfsdóttir

Jæja, þar sem ég var sest niður til að fara að lesa í "Strategic marketing" þá var alveg tilvalið að búa sér frekar til enn eina bloggsíðuna..

Ekki það að ég sé dugleg að blogga en ég alveg verið dugleg í að "eyða" tíma á netinu.. sérstaklega þegar ég ætla að fara að læra..

Það er ótrúlega margt búið að vera í gangi hjá mér undanfarið og kannski maður fari að koma því í orð smátt og smátt og deili því með heiminum.. :)

Ég er að vinna í að finna út hvernig þessi síða virkar en þangað til þá hendi ég bara inn í þessa færslu hinum síðunum mínum sem ég er búin að vera að dúlla mér í undanfarið:

Mesta snilldin: www.heilsufrettir.is/hress þar er hægt að lesa allt um Herbalife-ið mitt og árangurinn af því að nota vörurnar og nýta sér viðskiptin :)

Svo hef ég notað hellings tíma í www.myspace.com/hressandi .. ef þú ert með myspace þá getum við orðið vinir :)

og svo er ég með http://hilduringolfs.minnsirkus.is þar er hægt að skoða skemmtileg samfélög eins og Generation H og Liftoff..

jebb, er búin að nota pínu af tímanum mínum í þetta heeh 

Auglýsing

MITT HERBALIFE

HERBALIFE

Videos

INFO

If you like to get more information about the Herbalife products and the opportunities we offer, or if you just wanna talk in some other language than Icelandic, just leave a comment and I'll stay in touch.. or send me email: my.liftoff@gmail.com