Aðalvalmynd

Prófíll

AIESEC

Vinir og fjölzk..

Gagnasafn

Hvað er málið...!??Magnhildur Ingólfsdóttir

stefnumótunarvinna
Skil ekki alveg hvað er með mig..
Hroki.. leti.. eða bara komið nóg.. ??

Ég er með eitthvað ruglaðslega þykkt hefti fyrir framan mig í "Strategic marketing" og er að fara í lokapróf í því á föstudaginn! og ástæðan fyrir að prófið er svona snemma er að eftir það byrjum við í Markstrat, sem er svona einhver tölvuheimur sem við erum í liðum að keppa í að reka fyrirtæki,
já ég veit, rosa góð æfing áður en maður "fer út í lífið" en ég er bara alveg að gubba á þetta allt núna..  fæ mig ekki til að lesa heftið og langar ekki að taka þátt í þessari keppni..

Langar bara að fara eitthvað út í heim á flakk og vinna Herbalife.. er búin að einkennast soldið af þessu að eiga erfitt með að klára síðustu metrana.. núna þegar það er bara 1 og hálf önn eftir þá bara Tala af sér

Veit ekki, kannski er þetta því maður er búin að komast upp með að læra td bara fyrir próf deginum áður og fá alveg ágætis einkunn (ég veit, flestum finnst það ótrúlegt en ég er búin að minnka kröfurnar í skólanum) sko ég er farin að setja minna effort í skólann og meira í lífið og tilveruna, maður er víst meira en einkunn, las ég einhverstaðar..

En auðvitað á maður að halda þetta út og gera þetta vel þangað til maður klárar og reyna að nýta sér þetta sem best, viðskiptafræðin "er jú praktísk"

Mig vantar einhverja aðferð til að stappa í mig stálið.. eða berja það í mig.. eða allavega berja úr mér hrokann og letina.. hmmm

-óska eftir slagsmálum Glottandi

Athugasemdir

1
Sigrún Helga skrifar:
hej beib, þú ert svo rosa dugleg alltaf;) dáist að þér, dugnaðarforkur;) skil þig samt alveg að vera að fá gubbuna nuna, þú hefur nottla alltaf haft skolann numer 1 2 og 3 ;) en go görlí
kveðja úr Horsens;)
21. febrúar 2007 klukkan 21:53
2
Marta Sif skrifar:
Djöful sammála þér.
21. febrúar 2007 klukkan 22:16

Skrifa athugasemd

Auglýsing

MITT HERBALIFE

HERBALIFE

Videos

INFO

If you like to get more information about the Herbalife products and the opportunities we offer, or if you just wanna talk in some other language than Icelandic, just leave a comment and I'll stay in touch.. or send me email: my.liftoff@gmail.com