If you can dream it, you can do it!
Ferðalög..Magnhildur Ingólfsdóttir
Í framhaldi af öllu þessu hringli með "TO GO OR NOT TO GO" to LA þá var ég búin að skrifa niður að fara á AKTÍFA þjálfun í Stokkhólmi, 24.maí því þá verður goðið mitt, John Tartol, með þjálfun þar!!
Þuríður kom svo með þessa hugmynd áðan og mér líst bara frábærlega á hana. Þá væri náttúrulega algjör snilld ef að Danmerkur ferðin sem að Herbalife er að bjóða mér í, væri helgina 11-13. maí því þá væri ég búin í prófum og gæti bara farið að "krúsa" um Norðurlöndin. Gæti heimsótt Gunna og Sigrúnu, farið til Finnlands á Eurovision, ef það vill svo vel til að það sé 18-20.maí (hef ekki hugmynd) því við Marta og Jónína erum búnar að vera að tala um snilldina í því að fara þangað ![]()
Og gæti svo endað í Stokkhólmi, yrði bara svona eins og Interail á þvílíku farti...
vá hvað það væri töff ef þetta gæti bara gengið upp!!
Svo myndi ég taka annað svona tripp í lok júlí. Þá myndi ég fara til Köln 26.júlí á Extravaganza og svo væri farið yfir til London á Triathlon yfir verslunarmannahelgina!
Á reyndar aðeins eftir að bera þetta betur undir yfirmanninn minn.. en þetta er svona óska-dagskráin..
Sjitt hvað maður er mikill töffari, má bara hvorki vera að því að vera í vinnu eða skóla því ég þarf svo mikið að vera að ferðast ![]()
