If you can dream it, you can do it!
Ákvarðanir...Magnhildur Ingólfsdóttir
fjúff fjúff..Það er alveg rosaleg helgi nýafstaðin!!
Byrjaði alveg ótrúlega skemmtilega þar sem ég VANN BIKAR niðri á REX. Málið er að við erum að keppa í viðskiptaliðum í grúppunni okkar í Herbalife, mitt lið varð í 3.sæti og svo VANN ég einstaklingskeppnina, uss hvað ég er montin!!
Svo á laugardeginum var einn magnaðasti STS skóli sem ég hef farið á. Hann var í fyrsta lagi frábær því ég var að slá persónulegt met í fjölda "downlínu" sem mætti á staðinn, og þar af átti ég 3 sem fóru á svið.
Tvær voru að taka við SUPERVISOR pinnanum sínum, algjörar hetjur, og svo var mamma elskan að fá AKTÍFA SUPERVISOR pinnan sinn, hún er ótrúlega dugleg!!
Svo var að toppa skólann að Jónína og Björgmundur voru að taka við MILLIONERS TEAM pinnanum sínum og deildu sögunni sinni með okkur. Þau voru svo ótrúlega hvetjandi, höfðu trilljón ástæður til að gefast mörgum sinnum upp á þessari leið en þau komust í mark, algjörir sigurvegarar!
Þetta svona fékk mann til að endurskoða sína stöðu, taka afsakana listann og henda honum, fara að vinna og láta markmiðin sín verða að veruleika.
Þannig að núna ÆTLA ég að taka við Global Expansion Team pinnanum mínum í Köln. og þá sko líka betra að fara að vinna ef ég ætla að ná því.
Fyrst þarf ég að setja mér tímaplan og standa við það.. það er svo auðvelt að vera ekki í stuði en þá þarf maður bara að gera stuð og "stick to the game plan"
skóli og læra 8-17 ræktin og fjölskyldan 17-20 eftir 20 er Herbalife vinna.
Mér líst rosa vel á þetta plan en það á eftir að taka á að fylgja því..
Eftir helgina var ég líka búin að taka aftur ákvörðun um að fara til LA 21-26 mars en þá er Markstrat og allt kreisý í skólanum þannig að ég held að einu sinni enn taki ég það út af listanum.
En klári samt febrúar vel, nái 500 RO og sé allavega með réttindi til að fara þangað, enda væri það líka fyrsta skrefið í áttina að GET
Þetta snýst um ákvarðanir og þetta er háanna tími þeirra.. núna þarf maður líka að ákveða með sumarvinnuna, spurning ef maður ætlar bara að vera á ferðalögum allt sumarið þá gæti verið erfiðara með vinnuna.. hehe
