Aðalvalmynd

Prófíll

AIESEC

Vinir og fjölzk..

Gagnasafn

Valentínusardagur!Magnhildur Ingólfsdóttir

 Ef það va einhver sem var ekki búin að taka eftir því þá er Valentínusardagurinn í dag!!
Fyndið, ég heyrði í útvarpinu á leiðinni í skólann í morgun að á þessum degi væru allir að tuða yfir því að þurfa að gera eitthvað fyrir elskuna sína eða hinir sem væla yfir því að hafa engan til að dúllast í kringum og gera eitthvað fyrir..

Ég reyndar bara áttaði mig á því þá að ég gat bara brosað og verið fullkomlega ánægð með mína stöðu, að vera laus við að eyða deginum í að uppfylla einhvers annars væntingar. . .   [afneitun.. maður spyr sig..]

Í staðinn ætla ég að dekra við sjálfa mig, fara í klippingu og hafa það huggulegt :)  geri það sem mér sýnist, þá eru engar óuppfylltar væntingar eða vonbrigði :)

Get samt ekki neitað því að mér þótti mjög vænt um óvæntu valentínusar-kveðjuna sem ég fékk!!
Alltaf gaman þegar það er munað eftir manni, ekki síst á degi sem þessum ;)

but I'm off, getting haircut !!
ciao

Athugasemdir

1
Elfa pelfa skrifar:
Hey, hvaða óvæntu valentínusarkveðju? Þú gleymdir að segja mér frá henni! :D
en já... sammála þér, fínt að þurfa ekki að snúast í kringum rassgatið á einhverjum á þessum degi hehe (bullandi afneitun hjá mér!!)
15. febrúar 2007 klukkan 13:36

Skrifa athugasemd

Auglýsing

MITT HERBALIFE

HERBALIFE

Videos

INFO

If you like to get more information about the Herbalife products and the opportunities we offer, or if you just wanna talk in some other language than Icelandic, just leave a comment and I'll stay in touch.. or send me email: my.liftoff@gmail.com