Aðalvalmynd

Prófíll

AIESEC

Vinir og fjölzk..

Gagnasafn

LOKAVERKEFNI!!Magnhildur Ingólfsdóttir

jæja, er ég að verða gömul eða hvað!!??

Hvað segir það manni að núna 1.apríl á ég að skila inn til skólans um hvað lokaverkefnið mitt á að vera, sem ég á að skila í nóvember, á næstu önn!!

Sjitt ég held ég sé að verða stór.. alveg að verða komin með BS.. hmm
en ekki nóg með að ég viti um hvað það á að vera heldur á ég að tilkynna með hverjum ég ætla að vinna, reyndar er það ákveðið -hjúkk annars hefði hann ákveðið það, sverrir kallinn.. og ég á að láta þau vita fyrir hvaða fyrirtæki ég ætla að vinna það, og þetta fyrirtæki þarf að vera tilbúið að borga kostnað!!

Fjúff, núna held ég að ég þurfi að fara að láta sjá mig í skólanum og aksjúlí kíkja í blöð og hlusta á fréttir til að vita yfir höfuð hvaða fyrirtæki starfa á Íslandi, önnur en Herbalife.. Skömmustulegur heheh

ALLAVEGA ER ÁKVEÐIÐ AÐ ÉG FARI Á FRAMADAGA sem verða fljótlega í byrjun mars, þar fær maður ágætis yfirsýn yfir ft og hvort þau séu að bralla eitthvað áhugavert.. held ég þurfi þá samt að vera búin að gera smá CV til að geta hent í hausinn á þeim.. ok þá er það afgreitt, mæti bara þangað og þá engin ástæða til að láta sjá sig í skólanum.. hehehe Svalur

Jú jú, er að taka mig á.. er farin að reyna að fara fyrr að sofa á nóttunni og allt.. eitt skref í einu..

Skrifa athugasemd

Auglýsing

MITT HERBALIFE

HERBALIFE

Videos

INFO

If you like to get more information about the Herbalife products and the opportunities we offer, or if you just wanna talk in some other language than Icelandic, just leave a comment and I'll stay in touch.. or send me email: my.liftoff@gmail.com